Námssvið leikskólans eru:
Læsi og samskipti
Læsi í leikskóla felur í sér þekkingu, leikni og hæfni barna til að lesa í umhverfi sitt og tjá upplifun sína, tilfinningar og skoðanir á fjölbreyttan hátt.
Í leikskóla ber að skapa aðstæður svo börn fái ríkuleg tækifæri til að:
- eiga jákvæð og uppbyggileg samskipti í barnahópnum
- endurskapa upplifun sína og reynslu í leik og skapandi starfi
- tjá sig með fjölbreyttum hætti og með ólíkum efniviði
- kynnast tungumálinu og möguleikum þess
- njóta þess að hlutsta á og semja sögur, ljóð, þulur og ævintýri
- þróa læsi í víðum skilningi
- öðlast skilning á að ritað mál og tákn hafi merkingu
- deila skoðunum sínum og hugmyndum
- nýta ólíkar leiðir og margvíslega tækni til að n´lagast upplýsingar og setja fram hugmyndir sínar
- velta vöngum yfir eigin samfélagi og menningu og menningu annarra þjóða
Stefna Kópavogsbæjar um mál og lestur
Heilbrigði og vellíðan
Í leikskóla er lögð áhersla á að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl. Rannsóknir sýna að mataræði og næringarástand barna ásamt hreyfingu hefur áhrif á heilsu þeirra, þroska, vöxt og alhliða líðan. Leikskólar Kópavogs hafa sett sér næringarstefnu og leggja ríka áherslu á að bjóða upp á heilsusamlegt fæði og fylgja faglega viðurkenndum ráðleggingum um næringu barna. Mikilvægt er að hjálpa börnum að temja sér heilbrigðar matarvenjur til framtíðar. Daglegar athafnir í leikskóla stuðla að líkamlegri og andlegri vellíðan barna og góðri heilsu og hefur það áhrif á sjálfsmynd þess. Hægt er að finna stefnu Kópavogs varðandi næringu leikskólabarna.
Sjálfbærni og vísindi
Markmið sjálfbærni er að börn og kennarar geri sér grein fyrir því að þau vistspor sem sérhver einstaklingur skilur eftir sig skiptir máli, í nútíð og um alla framtíð. Lýðheilsa, þar sem hver einstaklingur ber ábyrgð á sjálfum sér og sinni heilsu, er hluti af sjáflbærni. Mikilvægt er að kenna börnunum að ber virðingu fyrir umhverfi sínu og náttúru og skapa þeim tækifæri til að upplifa og njóta. Börn beita ýmsum aðferðum við að kanna og skilja umhverfi sitt. Kennurum ber að ýta undir forvitni, ígrundum og vangaveltur barna og hvetja þau til að spyrja spurninga og leita mismunandi lausna. Hér má finna umhverfisstefnu leikskólanna.
Sköpun og menning
Barnamenning er samofin öllu starfi leikskóla og tengist leik barna, lýðræði, skapandi starfi og þjóðmenningu. Sköpun í leikskóla á fyrst og fremst að beinast að sköpunarferlinu, gleðinni, tjáningunni, könnuninni og náminu sem á sér stað þegar hugmyndir, tilfinningar og ímyndun fær að njóta sín. Allt skipulag og búnaður í leikskólaum á að stuðla að því að vekja forvitni barnsins, frumkvæði, virkni, áhuga, gleði og efla sjálfstæði þess. Hlutverk kennara er að velja leiðir sem hvetja til sjálfstæðra vinnubragða og skapandi hugsunar og gera börnunum kleift að nálgast efnið frá mörgum hliðum. Börnin fá tækifæri til að skynja umhverfi sitt, vinna með fjölbreyttan efnivið og öðlast margháttaða reynslu.
Hátíðir og hefðir í leikskólanum Dal.