Nauðsynlegur útbúnaður fyrir leikskólabarn

Útifatnaður þarf að vera eftir veðri og árstíðum, gott er að vera með poka sem fást t.d. í IKEA eða Tiger (kosta rétt innan við 500 krónur) og fleiri álíka búðum undir útifatnaðinn. 

Á mánudögum eru útifötin tekin upp úr pokanum og sett í hólf barnsins og á föstudögum eru þau tekin heim og þvegin.

Fylgjast þarf með útifötum því stundum þarf að þrífa þau oftar, fer eftir veðri hverju sinni. 

Hér má finna helstu upplýsingur um hvaða leikskólafatnað er gott að hafa með sér í leikskólann.

 Yfir sumarið og veturinn er gott að hafa:

 Yfir sumarið  Yfir veturinn
 Buff   Útigalli  
 Léttur jakki   þykkir vettlingar
 Vindbuxur  Hlý húfa (lambúshúfa)  
 Strigaskór  Loðfóðruð stígvél

 

 Auka föt í kassa  Yngsta deildin
Nærföt Bleiur  
Sokka/sokkabuxur Blautpappír  
Buxur  Merkt snuð 
Peysa/bolur Kodda/sæng
Auka vettlinga Öryggishlut (bangsa eða eitthvað slíkt sé barnið vant því)
Inniskór Taupoka undir blautan fatnað

 

Nauðsynlegt er að merkja allan fatnað.