Nauðsynlegur útbúnaður fyrir leikskólabarn
Útifatnaður þarf að vera eftir veðri og árstíðum, gott er að vera með poka sem fást t.d. í IKEA eða Tiger (kosta rétt innan við 500 krónur) og fleiri álíka búðum undir útifatnaðinn.
Á mánudögum eru útifötin tekin upp úr pokanum og sett í hólf barnsins og á föstudögum eru þau tekin heim og þvegin.
Fylgjast þarf með útifötum því stundum þarf að þrífa þau oftar, fer eftir veðri hverju sinni.
Hér má finna helstu upplýsingur um hvaða leikskólafatnað er gott að hafa með sér í leikskólann.
Yfir sumarið og veturinn er gott að hafa:
Yfir sumarið | Yfir veturinn |
Buff | Útigalli |
Léttur jakki | þykkir vettlingar |
Vindbuxur | Hlý húfa (lambúshúfa) |
Strigaskór | Loðfóðruð stígvél |
Auka föt í kassa | Yngsta deildin |
Nærföt | Bleiur |
Sokka/sokkabuxur | Blautpappír |
Buxur | Merkt snuð |
Peysa/bolur | Kodda/sæng |
Auka vettlinga | Öryggishlut (bangsa eða eitthvað slíkt sé barnið vant því) |
Inniskór | Taupoka undir blautan fatnað |
Nauðsynlegt er að merkja allan fatnað.