Skimanir

Leikskólakennarar og sérkennslustjóri fylgjast með framvindu þroska hjá nemendum. Til þess nota þeir ýmsar athuganir/skimun til þess að glöggva sig betur á hvar styrkleiki hvers nemenda liggur og átta sig betur á í hverju áhyggjur eru fólgnar séu þær fyrir hendi.

Hljóm 2 er lagt fyrir elstu nemendur skólans um miðjan október af kennara sem hefur réttindi til að nota þetta próf. Í janúar er þetta endurtekið fyrir þá nemendur sem ekki ná viðmiðunarmörkum um haustið. Niðurstöðum er svo skilað í grunnskólann. Hér eru nánari upplýsingar um Hljóm

EFI-2 er fyrir nemendur á fjórða ári og þetta er málþroskaskimun. Niðurstöður geta gefið ýmislegt til kynna s.s. hvort að leita þurfi til talmeinafræðings. Barn og kennari eiga rólega stund og skoða saman myndabók. Svör barnsins gefa vísbendinu um hvar það er satt í málþroskaferlinu. Þessi skimun kannar málskilning og tjáningarfærni barnsins og tilgangurinn er að finna þau börn sem þurfa á stuðningi að halda. Með því að finna börn með málörðugleika er hægt að bæta úr með snemmtækri íhlutun. Góður málþroski er nauðsynleg undirstaða lestranáms í grunnskóla en ekki síst fyrir lífið sjálft.

Tras er skráning á málþroska nemandans í gegnum leikskólaárin og notað í foreldrasamtöl.