Sérkennsla
Sérkennsla byggir á lögum um leikskóla nr. 90/2008 og samkvæmt þeim eiga öll börn eiga rétt á því að fá kennslu við hæfi. Markmiðið með sérkennslu er að tryggja að börn sem á því þurfa að halda fái stuðning til að geta nýtt sér leikskóladvölina á sem bestan hátt. Framkvæmd sérskennslu er á ábyrgð allra starfsmanna en sérkennslustjóri skipuleggjur þá vinnu í samstarfi við deildarstjóra. Lögð er áhersla á að efla og styrkja hvert barn með því að velja viðfangsefni við hæfi.
Ýr Harris er sérkennslustjóri Dals og netfangið hennar er: harris@kopavogur.is
Leiðir í sérkennslu
Ef grunur leikur á að barn þarfnist sérkennslu er fylgst sérstaklega með því og í framhaldi af því eru gerðar ráðstafanir í samráði við foreldra, Sérkennslustjóri gerir athugun á barni og ákveður í samráði við deildastjóra og foreldra hvert sé næsta skref. Ef barn þarfnast nánari athugunar er það í umsjón sérkennslustjóra og deildastjóra að óska þess að fá aðstoð frá utanaðkomandi sérfræðingum s.s sálfræðing, iðjuþjálfa eða talmeinafræðing.
Tákn með tali
Tákn með tali (TMT) er tjáningarform, ætlað heyrandi einstaklingum sem eiga við mál- og talörðugleika að stríða. Það er byggt á látbragði, svipbrigðum, táknum og tali. Í TMT eru táknin alltaf notuð samhliða töluðu máli og aðeins lykilorð hverrar setningar, eitt eða fleiri, táknuð. TMT er leið til tjáskipta jafnframt því sem hún örvar málvitund og málskilning barna.
Hægt er að skoða heimasíðu TMT og kynna sér tákn með tali: Tákn með tali