Réttindaskóli UNICEF

Í dag fékk Dalur viðurkenning og er orðinn Réttindaskóli UNICEF. Réttindaráð skólans sem eru elstu börnin okkar, tók við viðurkenningunni.

Þegar skóli gerist Réttindaskóli ákveður hann að skuldbinda sig við að gera réttindi barna að raunveruleika eftir bestu getu. Skóli, frístundaheimili og félagsmiðstöð eru jafnir samstarfsaðilar í verkefninu og er það gert með það að markmiði að setja barnið sem einstakling í miðju verkefnisins. Vinna með Barnasáttmálann hefur bein áhrif á líf barna og er mikilvægt að sú vinna fljóti sem mest milli allra þeirra uppeldisstofnanna sem barnið sækir.