Móttökuáætlun Dals fyrir nýja foreldra
Leikskólastjóri sendir bréf á öll börn sem hafa fengið leikskólapláss og foreldra þeirra. Í bréfinu eru þau boðin velkomin í leikskólann og foreldrar eru boðaðir á fund. Á þeim fundi er leikskólinn kynntur, foreldrar hitta deildarstjóra og skoða deildina sem barnið þeirra fer á.
Meðfylgjandi í bréfinu er bæklingur leikskólans og eru foreldrar beðnir um að kynna sér hann.
Einnig eru meðfylgjandi eyðublöð sem óskað er eftir að foreldrar komi með útfyllt á fundinn.
- Dvalarsamningur um dvöl barnsins í leikskólanum
- Samþykki vegna myndatökur
- Upplýsingar um barnið og væntingar þess í leikskólanum
- Almennar upplýsingar um málþroska barnsins
Þessi eyðublöð má finna inn á heimasíðu Dals undir foreldrar – eyðublöð fyrir foreldra.
Dalur styðst við þátttökuaðlögun og foreldrar fá upplýsingar um hvenær aðlögun hefst um miðjan júní.